Hvernig er Lífsbókin afhent?

Þegar ástvinur fellur frá koma nánustu aðstandendur í höfuðstöðvar Lífsbókarinnar með staðfestingu læknis um andlát viðkomandi. Staðfest verður að viðkomandi séu skráðir nánustu aðstandendur hins látna í Lífsbók hans/hennar/háns og þau sýna persónuskilríki því til sönnunar. Áhersla verður á stuðning, hlýju og virðingu af hálfu starfsfólks við syrgjendur við afhendingu Lífsbókar. Með upplýsingunum sem hinn látni skráði í Lífsbókina geta aðstandendur skipulagt hinstu kveðjustundina og gengið frá öllum formlegum málum í samræmi við vilja ástvinarins og eiga fjársjóð minninganna, ritaðan af þeim látna, til að styðja sig við í sorginni.