Fyrir mörg okkar er mikilvægt að hinsta kveðjustund okkar verði með því sniði sem við sjálf kjósum og í takt við þau gildi sem við lifðum eftir. Það getur verið erfitt að ræða þessa hluti við ástvini þegar við erum enn á lífi. Hér gefst tækifæri til þess að skrá niður hinstu óskir sínar og varðveita í Lífsbókinni á öruggan hátt. Nánustu aðstandendur fá þær í hendurnar þegar við föllum frá. Hinsta kveðjustundin getur þannig orðið að mjög persónulegri stund sem verður í takt við lífssýn okkar, og það gerir hana einstaka fyrir ástvini okkar.
Það er líka mikilvægt fyrir aðstandendur að hafa óskir okkar skráðar niður. Þegar við föllum frá munu þau standa frammi fyrir mörgum erfiðum ákvörðunum sem varða okkar hinstu kveðjustund og önnur formleg atriði. Við getum létt okkar nánustu lífið á þessari stundu með því að hafa okkar hinstu óskir skráðar niður og veita þeim þannig fullvissu um hvað það var sem við vildum.
Þessar óskir geta breyst eftir því sem við eldumst og aðstæður breytast. Hægt er að skrá sig inn á Lífsbókina hvenær sem okkur hentar og breyta því sem þar er skráð. Þannig ganga aðstandendur að því vísu að þessar óskir séu í takt við það sem þú hefðir viljað.
Vilt þú jarðsetningu eða bálför? Í hvaða kirkjugarði á að jarðsetja? Á að gróðursetja öskuna ásamt tré í Minningagarði Trés lífsins? Hvaða tré vilt þú að verði gróðursett? Hvaða lög á að spila í hinstu kveðjustundinni? Þetta eru á meðal atriða sem þarf að taka afstöðu til og hægt er að skrá í Lífsbókina.
Skjáskot úr frumgerð Lífsbókarinnar: