

Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir og Kristján Valur Jónsson eru fólkið á bakvið Lífsbókina.
Lífsbókin hefur verið lengi í þróun svo auk þeirra Sigríðar Bylgju og Kristjáns Vals hefur fjöldi sérfræðinga veitt aðstoð við hugmyndavinnu, þróun og uppbyggingu Lífsbókarinnar.
Sigríður Bylgja er hugmyndasmiður Lífsbókarinnar og stofnandi Tré lífsins- bálstofu og Minningagarða ses. Upphaflega var Lífsbókin hluti af Tré lífsins en í gegnum þróun verkefnisins þótti eðlilegra að hvor hluti fyrir sig ætti sér sjálfstæða tilveru. Sigríður Bylgja er með fjölbreyttan og þverfaglegan bakgrunn. Eftir að hafa lokið BA gráðu í HHS frá Háskólanum á Bifröst og MSc gráðu frá Háskólanum í Lundi í Mannvistfræði hefur hún ferðast mikið og búið til, stýrt og skipulagt smærri sem stærri verkefnum.
Kristján Valur er forritari, fræðimaður, rannsakandi og kennari. Hann er með doktorsgráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og KTH, Royal Institute of Technology, í Svíðþjóð með áherslu á tölvuöryggi og dreifð kerfi. Kristján Valur hefur starfað við kerfishönnun, hugbúnaðargerð og netöryggi til fjölda ára og var m.a. tæknilegur leiðtogi netöryggissveitarinnar CERT-IS.
Sigríður Bylgja og Kristján Valur kynntust við störf hjá netöryggisfyrirtæki þar sem sameiginlegur áhugi þeirra á gagnaöryggi og lífinu og tilverunni í stafrænum heimi leiddi þau til samstarfs um Lífsbókina.